Reynissíðan!

Stuðningsmannasíða Reynis Sandgerði!!

17.09.2007 14:25:17 / Reynir

hvítt er málið!!

Enn ein rútu ferðin

 Næsti leikur Reynis er gegn Grindavík, útí Grindavík. Ég hef sett mér það markmið að ná að fylla 2 rútur af stuðningsmönnum til að fylkja liði á völlinn! Þetta verður enn einn úrslitaleikurinn fyrir okkur og einnig fyrir Grindvíkinga þar sem að eyjamenn hafa gert harða hríð að þriðja sætinu í deildinni sem gefur sæti í úrvalsdeildinni næsta sumar. Núna á 10 mínútum er ég búinn að bóka 10 manns í rútu og byrjar söfnuninn gríðarlega vel.

Ég hef alltaf sagt það að við eigum besta stuðningsmannalið á landinu og danirnir okkar segja að við séum bestir í heiminum. Sýnum það og sönnum í Grindavík á laugardaginn. Sýnum líka samstöðu og mætum hvítklædd á leikinn ef það verður kalt þá er um að gera að finna stóran hvítan bol til að klæðast utan yfir úlpurnar og flíspeysurnar og ef þið eigið ekkert hvítt látið mig þá vita því ég á e-h hvíta boli sem ég get gefið frá mér því ég nota þá ekki lengur

Það mun kosta 500kr í sætið, en endanlegur brottfaratími er ekki kominn á hreint en það verður auglýst nánar síðar á reynir.is Leikurinn hefst klukkan 13:30 svo að líklegur brottfaratími verður kl. 11:30 þá erum við komin inn í Grindavík um 12 og þá getum við sest á Saltfisksetrið og fengið okkur snæðing og öl áður en við leggjum af stað á völlinn sem við fögnuðum svo vel eftir síðasta leik sem við spiluðum þarna suður með sjó.

Áhugasamir geta bókað sæti hjá mér (Fannar) í síma 662-4128


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 23:12:25 / Reynir

Spes-bíla mótið

Spesbílamótið – Laugardaginn 25. Ágúst

Dráttur í riðla
Nú styttist óðum í Spesbílamótið og er komið að því að draga í riðla. Dregið verður í beinni á www.reynir.is og fer drátturinn fram í hádeginu á morgun (þriðjudaginn 21.ágúst) eða kl. 12:15. Til að fylgjst sem best með drættinum er um að gera að ,,refresha“ síðuna sem oftast.

Mótsgjald
Lið eru beðin um að millifæra mótsgjaldið, 20 þúsund krónur á reikning  1190-26-1795, kt. 440294-2869, sem allra fyrst, helst strax, ekki seinna en á miðvikudag. Muna að setja í skýringu á millifærslu nafn liðsins.

Verðlaun
Fjölmörg verðlaun verða veitt á mótinu en þau eru:
1. Sæti – Medalíur, bikar og 6 kassar af bjór
2. Sæti – Medalíur, bikar og 4 kassar af bjór
3. Sæti – Medalíur, bikar og 2 kassar af bjór

Besta lélega liðið – Bikar, kassi af kók og kassi af prins pólo

Markahæsti leikmaðurinn, fyrsta, annað og þriðja sætið – Gull-, silfur- og bronsskór.
Tilþrif mótsins – Veglegur bikar og 2 bjórar
Ljótustu takkaskórnir  - Hummel takkaskór og 2 bjórar
Grófasti leikmaðurinn – Veglegur bikar og 2 bjórar
Besti leikmaðurinn – Veglegur bikar og 2 bjórar

Tími mótsins
Mótið hefst stundvíslega með fyrstu leikjum klukkan 11:00 og er áætlað að verðlaunaafhending hefjist svo klukkan 15:00. Lið eru beðin um að virða tímamörk og vera ávallt tilbúin í næsta leik þar sem einungis verður einn tímavörður fyrir alla velli sem flautar leikinn á og af. Nánara tímaplan mun birtast seinni part miðvikudags á www.reynir.is

Gott í gogginn
Að móti loknu verður svo boðið upp á grillaðar pylsur og öl fyrir keppendur.

Liðin
Liðin sem skráð eru til leiks eru:

FC Dedos 1                Premium FC               FC Ferro                     FC kajak
FC Dedos 2                Sporthúsið                  Garðabræður                      Hertz
FC Hasselhoff                        Samkaup                   Aston United             Old boys Reynir
FC Paddy‘s                Rafholt                                   Geirfuglarnir

Spesbílamótið – Leikreglur

 1.    Leiktími er 1 x 15 mín2.    Einn tímavörður er á mótinu sem flautar alla leiki á og af á sama tíma3.    7 leikmenn eru inná vellinum í hverju liði4.    Liðum er heimilt að hafa eins marga varamenn og þau langar5.    Skiptingar eru frjálsar6.    Markmaður má EKKI taka knöttinn upp með höndum eftir sendingu frá samherja7.    Engin gul spjöld eru gefin en gerist leikmaður mjög grófur er dómara heimilt að gefa honum rautt spjald sem útilokar hann frá leiknum í 3 mínútur (öðrum leikmanni er EKKI heimilt að koma inná á meðan)8.    Sigur gefur 3 stig og jafntefli 1 stig9.    Verði lið jöfn að lokinni riðlakeppni ræður markatala röðun liðanna í riðlinum, sé hún jöfn er tekið mið af fleiri mörkum skoruðum, sé það sami fjöldi eru það innbyrðis viðureignir sem gilda.10.   Sé jafntefli niðurstaðan í leikjum í úrsláttarkeppni og um sæti skal farið beint í vítakeppni. Fær þá hvort lið 3 vítaspyrnur.

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 11:12:13 / Reynir

Þróttur - Reynir

Þróttur - Reynir mánudaginn 16.júlí kl 18:00

Þróttarar eru í góðum málum í 3.sæti deildarinnar með 19 stig eftir 10 leiki, 6 stigum á eftir toppliði Grindavíkur á meðan við situm í 11. og næstsíðasta sæti með 7 stig. Þróttur er með markatöluna 21-12 á meðan markatala okkar er 11-23

Reynismönnum hefur gengið ágætlega í síðustu leikjum en við gerðum 3 jafntefli í röð gegn sterkum liðum frá KA Akureyri (útvelli), Víking Ólafsvík (heima) og Njarðvík (útivelli) áður en við töpuðum svo heima fyrir toppliði Grindavíkur. Stígandi hefur verið í liðinu og hafa strákarnir verið að berjast grimmt sem er eitthvað sem vantaði í byrjun móts, og er það von okkar reynismanna að þjálfararnir, Kobbi og Raggi séu að ná öllu því sem hægt er að ná, út úr þunnskipuðu liði okkar.

Með Þrótt eru fyrrum "sandgerðingar" í aðalhlutverki en skipstjóri skútunar er góðkunnugur í Sandgerði, enginn annar en Gunnar Oddson sem átti stóran þátt í að koma reynisliðinu þangað þar sem það er í dag. Einnig eru í reykjavíkurliðinu, markamaskínan Adolf Sveinsson, en hann varð markahæsti maður 2.deildarinnar í fyrra með okkur reynismönnum en hefur þó verið rólegur við iðju sína það sem af er sumri og eigum við ekki að vona að svo verði, allavega aðeins lengur. Annar "sandgerðingur" gekk til liðs við Þróttar í vetur en bakvörðurinn Óli Berry sem lék með okkur í fyrra fylgdi Gunna yfir. Einnig er Þróttur með aðra markamaskínu en skagamaðurinn Hjörtur Hjartarson er kominn í Þrótt og er það mikill styrkur fyrir þá. Hann er markahæstur í 1.deildinni í ár með 9 mörk í 9 leikjum En þróttur missti mikið þegar Sinesa Kekic fór frá þeim, en hann hélt á leið í Víking Reykjavík.

Miðað við þau ár sem Gunni þjálfaði hérna þá má búast við að Þróttarar leiki knettinum á jörðinni og sæki hratt á 4-5 mönnum og verða kantararnir virkir í sóknarleiknum og tel ég það vera þeirra helsti styrkur. Við þurfum við að hafa góðar gætur á Hirti og Dolla frammi en eins og við vitum þá getur Dolli þefað upp færin þó svo að nýtinginn sé ekki alltaf góð. Þróttarar eru með góðan markmann, en í markinu stendur Ólafur þór Gunnarsson sem hefur auk þess að spila með Þrótt, spilað með ÍA, Val og FH

Þróttarar eiga eina af skemmtilegri stuðningsmönnum landsins og verðu það því áskorun fyrir Hvíta-Herinn að mæta alvöru samkeppni í stúkunni og vonast ég til að sem flestir sjái sér fært að mæta á Valbjarnarvöll á mánudaginn kl. 18:00


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 23:56:33 / Reynir

Njarðvík 2 - 2 Reynir

Leiknum í Njarðvík lauk með 2-2 jafntefli og var það Stebbi Örn sem setti 2 kvikindi en Magni gerði mjög vel í báðum mörkunum og var óheppinn að skora ekki sjálfur þegar Stebbi setti seinna markið sitt. Hér að neðan er smá kynnig á leikmönnum, á næstunni verður vonandi fleirri kyntir til leiks, en þetta er bara gert til gaman til að kynna leikmennina aðeins fyrir stuðningsmönnunum!

Fullt nafn? Stefán Örn Arnarson

Fæddur? 1981

Starf? Lögreglan

Fyrri félög? Víkingur R. og Keflavík

Uppalinn? Víking Reykjavík

Landsleikir? Nei

Fyrsti leikur í mfl.? 18 ára gamall

Er það satt að þú sért ekki ennþá búinn að skora á æfingu á Reyni? Hver andsk... já!

 

Fullt nafn? Sigurður Helgi Harðarson

Fæddur? 1986

Starf? Bæjavinnan og þjálfa yngri flokka

Fyrri félög? Fylkir

Uppalinn? Fylkir

Landsleikir? Nei

Fyrsti leikur í mfl.? 18 ára


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 16:04:29 / Reynir

Njarðvík - Reynir

Njarðvík - Reynir

Á morgun klukkan 20:00 mætast á njarðvíkurvelli, Njarðvík og Reynir Sandgerði. Þetta mun vera fyrsti leikurinn á nýjum velli Njarðvíkur en hann er staðsettur fyrir ofan Reykjaneshöllina á svokölluðu nikkelsvæði.

Lið Njarðvíkur situr í 8.sæti með 7 stig, einu stigi meira en okkar menn í Reynir, sem sitjum í 9.sæti. Lykil leik er því um að ræða og verður án efa hart barist. Liðin komu saman upp úr 2.deildinni í fyrra og mættust tvisvar sinnum. Í fyrri leiknum sem fór fram í Sandgerði lauk leiknum með 1-1 jafntefli og kom Adolf Sveinsson okkur yfir en Rafn Markús Vilbergsson jafnaði áður en flautað var til leikhlés. Seinni leikurinn sem fór fram í Njarðvík og var jafnframt síðasti leikurinn sem spilaður var á þeim velli, lauk með 3-0 sigri heimamanna þar sem við áttum aldrei möguleika að ná einhverju útúr leiknum. Við höfum ekki unnið Njarðvík í deildarkeppni síðan 18.júní 1999 en þá unnum við góðan útisigur 1-3 og er kominn tími á að því verði breytt strax á morgun.

En núna er nýtt tímabil og eru bæði lið að berjast fyrir tilverurétt sínum í 1.deildinni, og heimta ég topp frammistöðu hjá öllum leikmönnum liðsins. Hafsteinn Helgason dettur út úr hópnum á morgun þegar hann tekur út bann en hann fékk að líta rauða spjaldið í síðasta leik. Hjörtur Fjeldsted mun taka hanns sess í miðju varnarinnar ásamt Antoni Inga.

Nýr markmaður var að bætast í leikmannahóp Reynis, Hann heitir Friðrik Valdimar Árnason og nú þarf Atli að vera á tánum því hann er kominn með verðuga samkeppni. Friðrik eða Frikki eins og hann er kallaður hefur leikið með Þrótt Vogum, Keflavík og Njarðvík. En hann varði mark Njarðvíkur áður en Albert Sævarsson kom til Njarðvíkur. Vertu velkominn félagi og gerðu þitt besta, það er það eina sem við getum farið fram á.

En eins og áður hefur komið fram þá fer leikurinn fram á nýjum velli Njarðvíkur klukkan 20:00 á morgun og hvet ég alla sem eiga tíma að renna í Njarðvík og hvetja hvítklæddu strákana til sigurs!


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 18:12:50 / Reynir

Reynir - Víkingur Ó

Ég minni á leikinn á morgun hjá Reynismönnum gegn Víking Ólafsvík kl.20:00 .. allt eða ekkert allir á ,Mamma mia kl 6 ,,,, Áfram Reynir


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 16:24:24 / Reynir

Stærsta tap í sögu félagsins!!

Heimamennn í ÍBV mættu slökum reynismönnum á Hásteinsvelli í gær. Blíðskapar veður var og völlurinn án efa einn sá fallegasti á landinu. Allt frá upphafsspyrnu leiksins réðu heimamenn lögum og lofum og sáu sandgerðingarnir aldrei til sólar. Ekki voru liðnar nema 20. mínútur af fyrr hálfleik þegar ÍBV var komið í 2-0 með mörkum frá Atla Heimissyni og Bjarna Hólm Aðalsteinssyni. Reynismenn voru máttlitlir gegn velspilandi eyjamönnum sem áttu í engum vandræðum með að spila sig í gegnum götótta vörn reynismanna, Einnig var Andrew Mwesigwa þeirra besti maður en allt okkar spil stoppaði á honum og einnig vann hann alla skallabolta á miðjuni, og áður en flautað var til leikhlés voru eyjamenn búnir að bæta við 2 mörkum en þar voru þeir Andrew Mwesigwa og Atli Heimisson með sitt annað mark, að verki. 4-0 var staðan í hálfleik.

Í seinni hálfleik var komið að Stefáni Bjarna Haukssyni að láta ljós sitt skína, en eftir 9 mínútna leik í seinni hálfleik var hann búinn að skora stitt fyrsta mark fyrir ÍBV og staðan orðin 5-0. Á 10 mínútna kafla eða frá 65.mín til 75mín skoruðu eyjamenn 4 mörk. Fyrst skoraði Matt Garner, og svo skoraði Stefán Björn Hauksson annað og þriðja mark sitt, þriðja markið kom úr víti sem Atli átti ekki möguleika á að verja. Varamaðurinn Ingi Rafn Ingibergsson skoraði 9.mark leiksins og staðan... 9-0. Það var svo Stefán Björn sem rak síðasta naglan í líkkistu reynismanna, 8mínútum fyrir leikslok er hann skoraði sitt 4 mark og 10. mark ÍBV og stærsta tap í sögu Reynis orðið að veruleika

Lið ÍBV: Elías Fannar Stefnisson, Arnór Eyvar Ólafsson, Matt Garner, Adrew Mwesigwa, Bjarni Hólm Aðalsteinsson (Guðjón Ólafsson 31.mín.), Páll Þorvaldur Hjarðar (Ingi Rafn Ingibergsson 68.mín.), Þórarinn Ingi Valdimarsson, Stefán Björn Hauksson, Pétur Runólfsson, Atli Heimisson (Egill Jóhannsson 46.mín.), Anton Bjarnason

Ónotaðir Varamenn: Hrafn Davíðsson, Bjarni Rúnar Einarsson

Lið Reynis: Atli Jónasson, Aron Örn Reynisson, Hafsteinn R. Helgason (Ari Gylfason 60.mín), Andrés Magnús Eggertsson (Helgi Karlsson 83.mín.), Sigurður Gunnar Sævarsson (Jóhann Magni Jóhannsson 46.mín), Brynjar Örn Guðmundsson, Anton Ingi Sigurðsson, Sigurður Helgi Harðarson, Stefán Örn Arnarson, Guðmundur Gísli Gunnarsson, Björn Ingvar Björnsson

Ónotaðir varamenn: Bjarni Ragnarsson, Sigurður Freyr Helgason

Gul spjöld: Aron Örn Reynisson 46.mín. Reynir. Egill Jóhannesson 66.mín. ÍBV

Mörk ÍBV:

  1. Atli Heimisson 15.mín.
  2. Bjarni Hólm Aðalsteinsson 19.mín.
  3. Andrew Mwesigwa 33.mín.
  4. Atli Heimisson 44.mín.
  5. Stefán Björn Hauksson 54.mín.
  6. Matt Garner 65.mín.
  7. Stefán Björn Hauksson 68.mín.
  8. Stefán Björn Hauksson 72.mín (víti)
  9. Ingi Rafn Ingibergsson 75.mín.
  10. Stefán Björn Hauksson 82.mín.

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 16:35:14 / Reynir

Hægt að hlusta á beina útsendingu frá ÍBV - Reynir í gegnum netið!

Eins og flestir ættu að vita þá leikur Reynir við ÍBV í 4.umferð VISA bikars karla í kvöld. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í Vestmanneyjum og hefst hann kl. 19:15.

Stuðningsmannalið þeirra ÍBV manna heldur úti vefsíðunni www.ibvfan.is. Þeir félagar bjóða upp á ansi skemmtilegan mögueika fyrir fólk sem sér ekki fram á það að komast á leikinn. Þeir bjóða nefnilega upp á beinar útvarpsútsendingar í gegnum veraldarvefinn frá heimaleikjum liðsins í 1.deildinni. Þeir ætla einnig að bjóða upp á útsendingu frá leiknum í kvöld og því kjörið fyrir þá Reynismenn sem ekki komast til Eyja að fylgjast með leiknum.

Hægt er að fara inn á vefsíðuna www.ibvfan.is og smella þar á tengil vinstra megina á síðunni eða smella hér.

Útsending hefst korteri fyrir leik, eða klukkan 19:00.

Smellið hér til að hlusta!

Áfram Reynir!


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 23:25:41 / Reynir

ÍBV - Reynir VISA-bikarinn

Á morgun, mánudaginn 25. júní klukkan 19:15 mætir Reynir til leiks á Hásteinsvelli og mætir þar heimamönnum í ÍBV í 4.umferð VISA-bikarsins.

Leið Reynis í þennan leik er búin að vera stutt en við komum beint inn í 3.umferð og mættum þar Gróttu á Seltjarnarnesinu. Leikurinn byrjaði ágætlega og á 28.mín. skoraði Mummi stórglæsilegt mark rétt fyrir utan vítateig eftir að hafa leikið á hvern leikmannin á eftir annan. Eftir það var eins og liðið hætti, eins og sigurinn væri unninn og sukkum við í sama 3.deildar bolta sem Gróttu liðið spilaði. tæklingar, pirringur og misheppnaðar sendingar einkendi okkar leik og voru það Gróttumenn sem pressuðu. Gróttumenn kom snaróðir til leiks, staðráðnir í að jafna og sú varð raunin þegar Brynjólfur Bjarnason skoraði eftir að boltinn barst til hans á fjædstönginni. En Mummi bjargaði okkur frá algjörri niðurlægingu í lokinn með því að skora annað mark sitt en hann náði frákasti eftir gott skot frá Aroni Reynissyni sem hafnaði í slánni. Á 90.mínútu ætlaði allt um koll að keyra þegar 3 leikmenn Reynis lágu í grasinu eftir hnefahögg leikmanna Gróttu. Dómarinn flautaði til leiksloka og veitti Andra Sveinssyni rauða spjaldið.

ÍBV lapp einnig við 1.- og 2.umferð og lék við Aftureldingu út í eyjum. Þá hafði ÍBV eimitt nýlega fengið aðal markaskorara Aftureldingar, hann Atli Heimisson til liðs við sig og átti hann eftir að reynast gamla félagi sínu erfiður viðfangs en hann skoraði eina mark leiksins á 13.mínútu.

Ary Gylfason er mættur aftur í slaginn og verður hann í leikmannahóp Reynis sem fer til eyja á morgun. Einnig er annar nýliði í hópnum en hann heitir Sigurður og kemur frá Fylki. Hafsteinn Frikka, Hafsteinn Rúnars og Tómas verða allir hvíldir á morgun, enda er leikið stíft núna. Síðasti leikur var á föstudaginn(KA), leikur á morgun(ÍBV), aftur næsta föstudag(Víkingur Ólafsvík) og svo aftur næsta mánudag(njarðvík) og aftur á næsta föstudag (Grindavík) þannig að það er stíft prógramm búið að vera og verður næstu vikur

En þetta er nóg í bili

með Reynis kveðju

Áfram Reynir

Fannson


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 23:38:36 / Reynir

Búgalaggalúgga

Já reynis menn gerðu góða ferð á Akureyri og nældu í stig þar á erfiðum útivelli. 0-0 fór leikurinn og vorum við nokkuð góðir. Hjörtur fékk rautt spjald fyrir að brúka munn við hörundsáran línuvörðinn. Stefán Örn var að leika sinn fyrsta leik fyrir Reynir og stóð hann sig bara vel, taka verður í reikninginn að hann hefur ekki spilað í 90mín frá því eikkverntíman í vor... apríl - maí voru menn að tala um. Ég vill bjóða hann velkominn í Reynir Sandgerði fyrir hönd okkar hér á blogginu. Aðrir menn voru mjög góðir. Atli átti góðan leik í markinu og 2 ef ekki 3 bjargaði hann okkur einn á móti manni,´nýja miðherjaparið átti skínandi leik, þeir Hafsteinn og Andrés. Andrés átti hvern einasta skallabolta sem kom að vörninni eins og hann gerði á móti Leikni. Tommi átti að byrja inná í hægri bakverðinum en hann meiddist í upphituninni þannig að hjörtur var færður af miðjunni og í hægri bakvörðinn og Toni sem átti að byrja á bekknum spilaði á miðjunni, hann var ágætur..´. hann á það til að vera svolítið kærulaus. Haffi Rúnars og Stebbi voru sí-ógnandi frammá við og hikuðu ekki við að taka menn á. Brynjar var færður í hægri bakvörðinn eftir að hjörtur var rekinn útaf og hann var snildin ein! sýndi það og sannaði hversu fjölhæfur hann er, getur nánast spilað hvaða stöðu sem er á vellinum. Svo kom Bjössi inná með þvílíkum krafti að elstu menn kváðu aldrei hafa séð annað eins! Svo ætlaði allt um koll að keyra bæði í leikslok og eftir að allir voru búnir í sturtu, þar var fremstur í fylkingu Ibra Jagne. Ég sá ekki hvernig það byrjaði inná vellinum en eftir sturtuna þá réðs hann að færeyingnum okkar og ætlaði að lemja hann. Aron greyið aldrei séð það "svartara" og hélt hreinlega að hann ætlaði að éta sig! hann nátturlega vissi bara ekkert betur en ég held að þeir séu löngu hættir að éta fólk þarna í Gambíu... allavega eru þeir hættir því á Akureyri

Smá slúður...

  • Svenni var að biðja gamlan vinnuveitanda um vinnu, von er á honum til landsins í júlí
  • Darko (Donnie Darko) er á leiðinni aftur frá Serbíu
  • Ingvi Rafn, rauðhærði víkingurinn í Keflavík gæti komið á lánssamning til okkar
  • Stebbi Lalas rauðhærði slátrarinn, fyrirliði Fc Kajak er á síðustu metrunum í samningaviðræðum við Reynir.
  • Einnig mun Sissi vera heitur fyrir að notfæra sér klásúlu í samningi sínum um að nota sjálfan sig í byrjunarliði Reynis, þá sem sóknarmaður í lendarskýlu.

Og þetta var slúður vikunar... Á mánudaginn verður leikið í 4.umferð bikarsins. Leikið verður í Vestmannaeyjum við ÍBV á Hásteinsvelli og hefst leikurinn klukkan 19:15. Draumurinn er að slá út eyjamennina, fá KR heima í 16-liða og svo FH heima í 8-liða... ég sé enga ástæðu fyrir afhverju við ættum ekki að vinna KR aftur ;)

When you live in dream


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 23:14:56 / Reynir

Reynir - Fjarðabyggð

Reynir - Fjarðabyggð

þriðjudaginn 19.júní klukkan 22:00

Seinasti leikur reynis fór ekki allveg eins og við vorum að vonast eftir en eftir harða baráttu, töpuðum við fyrir Leikni R. 2 - 3. Leiknis menn komust í 0 - 1 í seinni hálfleik með marki frá dananum knáa Jakob Spangsberg en eftir mikla baráttu og vinnu náðum við að jafna, 1 - 1 þegar Mummi skoraði beint úr hornspyrnu. Stuttu seinna skoraði Hjörtur Fjeldsted gullfallegt mark eftir góðan undirbúning við Mumma en fallegt bogaskot hans rataði efst í fjær hornið og við komnir yfir 2 - 1. En við það virtust okkar menn slaka á verðinum og halda sigurinn væri unninn en svo var ekki og eftir óheppni í vörninni náði Spangsberg að jafna fyrir leiknis menn, 2 - 2. Spangsberg var ekki hættur því skömmu fyrir leikslok náði hann að fullkomna þrennuna eftir hornspyrnu, en hann var einn og óvaldaður inní markteig og potaði knettinum inn.

Þannig var síðasti leikur :(

Næst er það Fjarðabyggð, Þeir spiluðu við Stjörnuna á laugardaginn og töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu og fengu á sig sitt fyrsta mark, leikurinn endaði 0 - 2 fyrir Stjörnuna.

Fjarðabyggð er með mjög sterka vörn og eins og sést hefur í deildinni þá voru þeir að fá á sig sín fyrstu mörk í deildinn í sumar í síðasta leik, En þar eru þeir Andri Hjörvar Albertsson og Haukur Ingvar Sigurbergsson sem mynda miðvarðaparið. Aðal markaskorari liðsins í lengjubikarnum var grindvíkingurinn Guðmundur Atli Steinþórsson og munu varnarmenn okkar þurfa að hafa góðar gætur á honum.

Búist er við að fyrirliði okkar, Hafsteinn Helga komi aftur inn í byrjunarliðið en þá er það spurningin hver dettur út... Andrés átti frábæran leik á móti Leikni þegar hann spilaði sinn fyrsta deildarleik í byrjunarliði í sumar, hann vann hvern einasta skallabollta og var til sóma í vörninni.

Við urðum fyrir miklu áfalli þegar Árni Freyr greindist með brjósklos og verður frá allt sumarið. sendum við honum kveðju og vonumst til að hann verði orðinn góður sumarið 2008 þegar við mætum aftur til leiks í 1.deildinni.

En eins og áður sagði þá hefst leikurinn við Fjarðabyggð klukkan 20:00, þriðjudaginn 19.júní

Reyniskveðja

Fannson


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 19:50:34 / Reynir

Flognir á brott

Kanarnir á heimleið!

Eftir stutta dvöl í Sandgerði hefur verið ákveðið að "The three amigos" verði sendir aftur heim til USA. Ekki tókst þeim að sanna sig hér hjá Reynir og náðu þeir ekki að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna okkar ástkæra félags... þetta kemur fram á reynir.is

Ég segi... fari hafi féð betra!! það væri nær að reyna að fá einhverja dani eða eitthvað... spurning hvort að svenni viti ekki um einhverja sem eru tilbúnir að koma... og hann kemur kanski bara með.

þetta var bara stutt frétt

goodby shawn, mike and junior


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 11:56:36 / Reynir

Grótta - Reynir

Næsti leikur er á móti Gróttu á Seltjarnanesinu á morgun (mánudag) klukkan 20:00 Þessi leikur í 3.umferð í Visa-bikarnum og erum við að hefja þátttöku hér og nú.

Grótta sem leikur í 3.deildinni er búið að leika við Kára á Akranesi sem einnig leikur í 3.deildinni og unnu þeir þann leik sannfærandi 1-8 í 1.umferðinni. Í 2.umferð léku þeir við lið Berserkja sem einnig leika í 3.deildinni og vann Grótta þá 3-0 á heimavelli.

Gróttumenn eiga harma að hefna eftir að við slógum þá út í undanúrslitum 3.deildarinnar á Gróttuvelli þriðjudaginn 6.sept.2005. það árið unnum við 3.deildina og komum í veg fyrir að Grótta kæmist upp.

Ef við rifjum aðeins meira upp þá töpuðum við fyrri leiknum heima á móti Gróttu 4-5 Í þeim leik voru nokkrir leikmenn sem ennþá eru í dag í herbúðum Reynismanna, þeir, Helgi Karlsson, Hafsteinn Frikkason, Mummi, Haddi Helga og Bjössi. Einnig var framkvæmdarstjórinn okkar hann Kristján (Brauðfótur) Jóhannson í liðinu og undirritaður var í starfsliðinu á bekknum. Einnig var í markinu hjá Gróttu Oddur Björnsson sem árið eftir gekk í raðir Reynismanna. Mörkin skoruðu Haddi Frikka 2 og Adolf Sveinsson sem nú leikur með Þrótt Reykjavík.

Seinni leikurinn var leikinn á Seltjarnarnesi í miklum rokleik og sömu leikmenn sem ég taldi upp áðan voru í leikmannahóp okkar þá og eru enn, en einnig var Hjörtur Fjeldsted með í seinni leiknum. Gróttu menn komust yfir á 9.mín og útlitið var ekki bjart fyrir okkur, sem lékum á móti miklum vindi. En það hefur oft hjálpað okkur og á 19.mín náði Adolf að jafna. Á 44.mín kom Mummi okkur yfir og þannig var staðan í hálfleik. Á 76.mín skoraði Adolf aftur og það var svo Óli Ívar Jónsson sem rak smiðshöggið á 90.mín úr víti eftir að Oddur Björnsson hafði átt glórulausa tæklingu á Mumma og uppskar hann rautt spjald fyrir það.

Leikurinn á morgun verður án efa hörkuleikur og hvet ég alla til að mæta á Seltjarnarnesið og hvetja okkur til sigurs. Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson og honum til aðstoðar verða þeir Hákon Þorsteinsson og Hallgrímur Viðar Arnarsson

Með Reynis kveðju

Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 13:46:57 / Reynir

Reynir - Grótta !

Búið að draga í bikarnum

Nú rétt áðan ver dregið í 3. umferð VISA bikarkeppni karla í höfuðstöðvum KSÍ. Okkar lið var í pottinum ásamt 23 öðrum liðum og drógumst við gegn Gróttu á útivelli. Leikurinn er settur á 12. júní en það er ekki staðfest ennþá. Aðrir leikir i 3. umferð eru eftirtaldir.

  1. Þór-KA
  2. Dalvík/Reynir-Völsungur
  3. Höttur- Fjarðarbyggð
  4. Fjölnir-Njarðvík
  5. ÍR-Grindavík
  6. Þróttur-Ýmir
  7. ÍBV-Afturelding
  8. Grótta-Reynir Sandgerði
  9. Víkingur Ó-Haukar
  10. Leiknir R-Selfoss
  11. Hamar-Stjarnan
  12. Leiknir F.-Sindri

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 16:50:42 / Reynir

Stjarnan - Reynir

Næsti leikur Reynis er gegn Stjörnunni á stjörnuvelli í Garðabænum, fimmtudaginn 7. jún n.k. kl. 20:00.

Í fyrstu 3 leikjum Stjörnunar, töpuðu þeir a móti Grindavík 1-3 og gerðu svo 1-1 jafntefli við bæði Þrótt og Fjölnir og eru það sannarlega vonbrigði þar á bæ þar sem að Stjörnunni var spáð 5 sæti af fyrirliðum og þjálfurum liðanna í 1.deildinni.

Leikmenn Reynis þurfa að hafa með sér gerfigrasskóna því Stjarnan spilar heimaleiki sýna á gerfigrasi og vonandi á það ekki eftir að hrjá okkur mikið. Annars er aðstaða liðsins öll hin glæsilegasta. Stjarnan ku vera með nokkra leikmenn sem eru fráir á löppinni og mun það vera helsti styrkleiki liðsins, þ.e.a.s. hraðinn. Lykilmaður liðsins mun vera sóknarmaðurinn Guðjón Baldvinsson hann hefur verið eftirsóttur af liðum í úrvalsdeildinni. Einnig eru þeri með Keflvíkinginn Magnús Þormar sem við reyndum svo ákaft að fá í okkar Reynislið en hann kaus að fara í Stjörnuna í staðinn... óheppinn hann ;) Stjarnan er með ungt og reynslulítið lið. Það sem við þurfum að gera er: að sækja hratt og skora snemma. Reynsluleysi liðsins gæti gert þeim erfitt að vinna úr því og eru þeir líklegir til að brotna niður við mótlæti. Svo er það svo gaman fyrir okkur stuðningmennina þegar við fáum mark snemma ;)

Hvíti-Herinn er að vinna í því að finna pöbb nálagt vellinum til að hittast á fyrir leik. Haffi og Mummi verða tilbúnir í næsta leik en hvort þeir verði með er annara að ákveða, sjálfur ætla ég að gera allt sem í mínu valdi að vera sloppinn útaf sjúkrahúsinu fyrir leikinn en það er bara að bíða og vona :D

þangað til næst

Fannson


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan